Höfuðfat sem litlar stúlkur notuðu við upphluti á 20. öld, bátlaga, oft skrautlegt og bundið undir höku.
Höfuðföt fylgja öllum íslenskum búningum.
Húfur karla eru prjónaðar, röndóttar ullarhúfur með litlum skúf.
Skotthúfur hafa verið notaðar um aldir á Íslandi. Allar enda þær í skotti efst, við skottið er festur skúfur og hólkur hafður á mótum skotts og skúfs. Á 18. og 19. öld var húfan djúp, prjónuð úr svörtu, stundum svarbláu, fínu ullarbandi og með skúf úr ullarbandi. Á síðari hluta 19. aldar voru notaðar grunnar, […]
Húfur sem stúlkubörn báru við faldbúninga yfir litlu trafi og bundnar undir kverk. Húfurnar gátu verið úr silki, bryddaðar og mikið skreyttar og með silfurhnöppum í kollinn. Þegar konur fóru að bera spaðafalda í stað krókfalda breyttust líka húfur stelpnanna og í stað hnappanna í kollinn kom lítill spaði og eftir það voru húfurnar kallaðar […]
Húfa stúlkubarns frá því um 1800. Skreytt húfa, bundin undir kverk, sem tók við af skarðhúfum. Spaðahúfa var með lítinn spaða í kollinn, í líkingu við fald kvenna sem voru að þróast um líkt leyti.